Description
Notkunarsvið
Sérhönnuð einangrunar- og festifroða: Teygjanleg froða með hátt varmaeinangrunargildi sem tryggir fullkomna raka- og loftþéttingu gegn loftleka milli byggingareininga í mannvirkjum.
Teygjanleg og loftþétt fúguþétting: Fyrir þanfúgur, tengingar, skarir, sprungur og op, t.d. á milli eða meðfram inni- og útiveggjum, holveggjum, milliveggjum ásamt loft-, þak- og gólfeiningum.
Þétting og fylling ísetturýmis: Fyrir ísetningar- og stillirými kringum burðar- og fasaðaeiningar, svo sem forsteyptar viðar- og steypueiningar, ál-, stál-, viðar- og plastprófíla ásamt hurðar- og gluggaflönkum/körmum.
Þétting gegnumfærslna: Fyrir fyllingu og þéttingu á gegnumfærslum í inni- og útiveggjum, fasöðum, gólfum og þökum.
Líming og þétting einangrunarplatna: Til að líma og þétta saman einangrunarplötur og klæðningarefni við byggingu á fasöðum, gólfum, þökum ásamt inni- og útiveggjum.
Þétting sérhæfðra skára: Til þéttingar á tengingum í þakmænum (kamb), kvistum, reykháfum/skorsteinum, loftræsirörum.
Fylling og einangrun á holrýmum: Til að fylla, þétta og einangra tóm/holrými í þökum, gólfum, fasöðum, loftum og veggjum bæði innan- og utanhúss.





