Skip to main content

Silicon-FR eldv. SV 600ml. (12)

Seal-it® 220 SILICON-FR er hágæða, eldvarnarvottað þéttiefni byggt á silíkontækni. Sérstaklega hannað fyrir eldvarnarþéttingu á línulegum skeytum (fúgum) í byggingamannvirkjum, útveggja- og glerjakerfum. Eldþolið í allt að 4 klukkustundir skv. prófunum hjá Effectis, í samræmi við staðalinn EN 1366-4:2006+A1:2010.

Description

Notkunarsvið

  • – Sérstaklega þróað sem varanlegt eldvarnarþéttiefni fyrir þensluskeyti (fúgur) í útveggja-, gólf-, lofts-, þak-, sem og inni- og útveggjamannvirkjum, sem vinnur gegn útbreiðslu elds, reyks og eitruðu gufna.

  • – Vottað þéttiefni fyrir skeyti í byggingum, heimilum og almannarýmum sem eru hluti af eldþolnum/eldhamlandi virkjum og kerfum sem lúta ströngum kröfum um brunavarnir.

  • – Eldvarnarþétting efst og meðfram glerrúðum í glerjunarkerfum í byggingum, í samræmi við NEN 3576/NPR 3577.

  • – Eldvarnarþéttingar fyrir tengi-, jaðar- og þensluskeyti á milli eða meðfram bygginga- og útveggjaíhlutum, svo sem gluggum, hurðar- og gluggakörmum, prófílum, steyptum einingum og plötum.

  • – Reyk- og gufuþéttar þéttingar á tengingum í reykhafskerfum.

  • – Fyrirbyggjandi þétting/fylling á röra-, leiðslu-, strengja- og stokkagegnmótum í gólfum, loftum, þökum og inni- og útveggjum/hliðum.

  • – Eldvarnarþéttingar í skeytum fyrir lagnatækni og lagnakerfi.


    Eiginleikar

    • – Endingargott, heldur sveigjanleika sínum, hámarkshreyfanleiki allt að 25%.

    • – Vottað eldvarnarefni, óeldfimt, veitir örugga vörn gegn útbreiðslu reyks og gufna.

    • – Frábærir vinnslu- og viðloðunareiginleikar á nánast öll yfirborð, dræg sem ódræg, án grunnunar (primer).

    • – Hlutlaust (neutral), lyktarlítið, sýrufrítt og rýrnunarlaust CE-vottað silíkonkerfi sem harðnar án rýrnunar.

    • – Uppfyllir kröfur um innbrotsþolið gler í samræmi við öryggisstaðal hollensku lögreglunnar („Politie Keurmerk veilig wonen“).

    • – Góð mótstaða gegn upplitun, útfjólubláum geislum (UV), veðrun, vatni, raka og eldingu.

    • – Tærir ekki málma.

    • – Samhæft í beinni snertingu við PVB-lagskipt gler og jaðarþéttingar á einangrunargleri.

    • – Án leysiefna og lífrænna mýkingarefna (plasticisers).

    • – Mjög lítil uppgufun: Vottað í VOC-losunarflokki A+.


      Notkunarskilyrði

      • Notkunarhitastig (umhverfis- og yfirborðshitastig): Á milli +5 °C og +40 °C.

      • Yfirborð: Á trausta,  þurra, hreina, ómengaða, fitu- og rykfría fleti.

      • Mál á skeytum: Tryggið réttar stærðir skeyta (fúgna) til að þær gleypi hreyfingar með réttum hætti.

      • Hreinsun: Notið viðeigandi bursta til að fjarlægja allar lausar agnir af yfirborðinu.

      • Fituhreinsun: Fituhreinsið yfirborðið vandlega með Seal-it® 510 CLEANER.

      • Grunnun: Seal-it® 220 SILICON-FR hefur breitt viðloðunarsvið, en mjög gljúp (porous) yfirborð ætti að formeðhöndla með Seal-it® 520 PRIMER, og slétt yfirborð með litla viðloðun ætti að meðhöndla með Seal-it® 525 Clean & Bond.

      • Frágangur: Notið Seal-it® 550 FINISH til að slétta og ganga frá yfirborðinu áður en skinna/skán fer að myndast.

        Vottanir



Share