Skip to main content

High-Tack 360 LÍMKÍTTI-HRAÐ HV 600ml(12)

Seal-it® 360 HIGH-TACK er sterkt, smitfrítt, teygjanlegt og fjölhæft límkítti úr MS-Polymer®, með einstaklega háa upphafsfestu. Mjög vel fallinn til að líma þung efni og veita tafarlausa festingu á mismunandi efnum.

Nánari upplýsingar:

https://www.connectproducts.nl/en/products/msp-hybrid/seal-it-360-high-tack/

samthykki_Seal it_360 High Tack

Description

Eiginleikar

Einstaklega hár upphafsstyrkur upp á að minnsta kosti 400 kg/m², veitir tafarlausa, sterka og varanlega festingu.

Endingargott og varanlega teygjanlegt með allt að 20% hreyfigetu.

Fjölhæft bæði innan- sem utandyra, ofursterkt, hratt og auðvelt í notkun.

Framúrskarandi viðloðun án grunns á flest öll yfirborð, jafnvel röku efni.

Harðnar og nær fullum styrk hratt.

Hár lokastyrkur og mikið vélrænt viðnám fyrir þungar limtengingar.

Yfirmálanlegt með olíu- og vatnsþynntum málningarkerfum.

Þykkfljótandi (Thixotropic), sígur ekki

Veldur ekki tæringu á málmum.

Skaðar ekki silfurhúð á speglum eða PVB-lagskiptu gleri.

Lyktarlaust, harðnar án þess að rýrna eða myndast blöðrur (CE-vottað blendingskerfi).

Góð mótstaða gegn útfjólubláum geislum (UV), veðri, vatni, raka og öldrun.

Frítt við ísósíanöt, leysiefni og sílikon.

Einstaklega lág útgufun (emission): Vottað samkvæmt EMICODE EC1 PLUS.

Smitar ekki út frá sér né skilur eftir bletti á gljúpum/drægum efnum (eins og náttúrusteini og steypu) og mislitar ekki fúgukanta.

Dregur vel úr hljóð- og vélrænum titringi.

Sérlega auðvelt að slípa og púa eftir að efnið hefur harðnað alveg.

Share